Lifðu í sátt - lærðu að nota aðferðir ACT

Lifðu í sátt - lærðu að nota aðferðir ACT

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Feb 09 2027 19:30

Á þessu sex vikna námskeiði verður lögð áhersla á að kynna fyrir þátttakendum sálfræðilegan sveigjanleika til að auka þrautseigju og seiglu.

ACT (Acceptance and Commitment Therapy) er eitt örast vaxandi gagnreynda meðferðarformið í heiminum í dag. Það telst til þriðju bylgju hugrænnar atferlismeðferðar og miðar að því að auka sálfræðilegan sveigjanleika. ACT byggir á þeirri kenningu að í stað þess að bæla eða forðast sársaukafulla atburði séu núvitund og sátt sveigjanlegri viðbrögð gagnvart áskorunum lífsins.

Á námskeiðinu sem spannar sex vikur verður lögð áhersla á að kynna fyrir þátttakendum sálfræðilegan sveigjanleika til að auka þrautseigju og seiglu.

Með því að upplifa hugsanir, líkamleg viðbrögð og tilfinningar á sveigjanlegri hátt er hægt að draga úr neikvæðum afleiðingum þeirra.

Námskeiðið gagnast öllum sem hafa áhuga á að læra nýjar leiðir til að takast á við sjálfa sig og áskoranir í lífinu.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Að láta hluti gerast með skuldbindingu.
  • Að öðlast frelsi með því að nota sjálfan þig sem samhengi.
  • Að búa til fókus, sveigjanleika og lífsfyllingu með því að tengjast núinu.
  • Að aftengjast hugsunum.
  • Að verða sveigjanlegri með persónuleg gildi.
  • Að valdefla þig í gegnum sátt.

Ávinningur þinn:

  • Aukin hugræn þrautseigja og seigla.
  • Leiðir til að þróa og styrkja sálfræðilega sátt.
  • Að vera meira til staðar í núinu.
  • Hvernig má koma í veg fyrir að hugrænar takmarkanir stoppi þig.
  • Leiðir til þess að nálgast gildin þín.