LIFE Icewater: Blágrænt málþing Reykjavíkurborgar

LIFE Icewater: Blágrænt málþing Reykjavíkurborgar

City Hall, Tjarnargata 11, 101 Reykjavík Directions

Wed Sep 23 2026 13:00

Opið málþing um framgang LIFE Icewater verkefnisins í Reykjavík um bætt vatnsgæði og vistkerfi í Tjörninni og Vatnsmýrinni, flóðavörnum í Kvosinni og innleiðingu blágrænna lausna. Ýmsir aðilar tengdir verkefninu frá Reykjavíkurborg, Veitum, Umhverfis- og orkustofnun o.fl. upplýsa um stöðu verkefna.

Dagskrá:

Ávarp og opnun málþings – Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagssviðs

LIFE Icewater verkefnið í Reykjavík – Anna Rósa Böðvarsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg

Hólmagerð í Tjörninni – Þórhildur Þórhallsdóttir, landslagsarkitekt hjá Landmótun

Vatnsmýrin - Staða og næstu skref - Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum

Mæling forgangsefna í Tjörninni – Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri vöktunar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur

Myndband: Trekanten vatn í Stokkhólmi – svipaðar áskoranir og í Tjörninni í Reykjavík

Hvers vegna blágrænar ofanvatnslausnir? - Halldóra Hrólfsdóttir, skipulagsráðgjafi og framkvæmdastjóri ALTA

Myndband - Blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði

Flóðamat í Kvosinni: Niðurstöður - Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís

Endurhönnun fráveitu í Þingholtum – Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum

LIFE Icewater verkefnið á Íslandi - Sæmundur Sveinsson, verkefnastjóri LIFE Icewater, Umhverfis- og orkustofnun

Samantekt og lokaorð - Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri verkefnastjóri hjá Sorpu,

Málþingi er í Tjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 23. september milli kl. 13 og 15.

Öll velkomin