Lífeyrismál og starfslok - Fjarnámskeið 12. september

Lífeyrismál og starfslok - Fjarnámskeið 12. september

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Sat Sep 12 2026 09:00

Ítarlegt 3 klukkustunda námskeið á mannamáli með reyndum sérfræðingi í lífeyrismálum.

12. september kl. 09:00–12:00.

 

SNEMMSKRÁNINGARTILBOÐ

Notaðu afsláttarkóðann SNEMMA til og með 5. september og fáðu 25% afslátt.

Á námskeiðinu verður rætt verður um það helsta sem gott er að vita varðandi undirbúning starfsloka og fjármál á lífeyrisaldri. Markmiðið er að þátttakendur skilji betur eigin stöðu og réttindi svo hægt sé að gera meira úr hverri krónu.

Meðal spurninga sem svarað verður:

- Hvenær og hvernig getur hentað að sækja lífeyrisgreiðslur?

- Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?

- Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar almannatrygginga (TR)?

- Þarf ég að gera erfðaskrá eða umboð?

- Hvernig virkar skipting lífeyrisréttinda milli hjóna?

- Hvaða skatta kem ég til með að greiða?

Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem eru farnir að huga að starfslokum, vilja átta sig betur á lífeyrisréttindum sínum eða aðstoða maka eða foreldra við undirbúning lífeyristöku.

Björn svarar spurningum þátttakenda á námskeiðinu. Að því loknu fá þeir sendan gagnlegan verkefnalista sem auðveldar vinnuna við undirbúning starfsloka.

Námskeiðið verður haldið á vefnum og fá þátttakendur sendan hlekk í tölvupósti þegar nær dregur.

Fyrirlesari er Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi. Nánari upplýsingar um Björn má nálgast á bjornberg.is