Lífríki Íslands
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Feb 02 2027 17:00
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita heildstæða yfirsýn yfir lífríki Íslands og sérstöðu þess í vistfræðilegu og sögulegu samhengi.
Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum.
Örnám í samstarfi við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands.
Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti:
- Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar.
- Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar. Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita heildstæða yfirsýn yfir lífríki Íslands og sérstöðu þess í vistfræðilegu og sögulegu samhengi. Fjallað er um uppruna og þróun flóru og fánu, helstu plöntu- og dýrahópa og tengsl þeirra við jarðsögu, landslag og loftslag. Rýnt er í þróun gróðurfars, landhnignun og hlutverk landgræðslu og skógræktar. Einnig er fjallað um villt spendýr, fuglalíf, fiskistofna og húsdýr, lífshætti þeirra og nýtingu. Sérstök áhersla er lögð á lífríki ferskvatns og sjávar, nýtingu náttúruauðlinda, áhrif mengunar og samspil manns og náttúru. Nemendur tengja vistfræðileg hugtök við sjálfbæra nýtingu og náttúruvernd og setja lífríki Íslands í samhengi við ferðamennsku og miðlun náttúruupplifunar.
Hæfniviðmið:
Við lok námskeiðsins getur nemandi:
- lýst helstu einkennum og þróun íslenskrar flóru og fánu í vistfræðilegu samhengi.
- greint helstu plöntu- og dýrahópa og útskýrt lífshætti og búsvæði þeirra.
- útskýrt áhrif jarðsögu, loftslags og landnýtingar á þróun gróðurfars og dýralífs.
- greint tengsl vatna- og sjávarlíffræði við nýtingu fiskistofna og umhverfisáhrif.
- rakið hlutverk landgræðslu, skógræktar og náttúruverndar í sjálfbærri umgengni.
- miðlað fræðilegri umfjöllun um lífríki Íslands á skýran og faglegan hátt.
Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði.
Staðlota í námskeiðinu er 27. febrúar 2027, kl. 9: 00 – 16:00.