Listin að vera leiðinlegt foreldri
Thu Mar 04 2027 19:00
Í fjörlegum fyrirlestri fer Ársæll Arnarsson yfir það með foreldrum hvernig gott er að setja mörk og hvers vegna.
Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Þetta er líklega ekki það hlutverk sem flest okkar sáu sig í þegar við ákváðum að eignast börn. Um leið og börn hafa öðlast frumskilning á tungumálinu, virðast óþægilega margar setningar foreldranna byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Í fjörlegum fyrirlestri verður farið yfir það hvernig maður setur mörk og hvers vegna.
Námskeiðið er ætlað foreldrum og aðstandendum barna og unglinga sem vilja auka þekkingu sína á viðfangsefninu.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Mörk og aga byggðan á kærleika.
- Hvernig börn þroskast og leita stöðugt að vísbendingum úr umhverfinu um hvað má og hvað má ekki – um hvað er gott og hvað er slæmt.
- Hvað gerist innra með hinum fullorðna einstaklingi þar sem hann reynir að rækja uppeldishlutverkið.
Ávinningur þinn:
- Að hjálpa börnum að öðlast margvíslega hæfni, s.s. sjálfsaga, ábyrgð, félagshæfni og þolinmæði.
- Að kenna börnum um orsök og afleiðingu.
- Að skilja muninn á aga og refsingu.
- Að læra að vera föst fyrir en kærleiksrík.
- Að geta haft stjórn á tilfinningum sínum í erfiðum aðstæðum með börnum.