Ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni

Ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni

Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions

Fri Oct 23 2026 12:00

Hannes Pétursson (f. 1931) sendi á dögunum frá sér sína tólftu ljóðabók, Hjá Leyningsvötnum. Af því tilefni ætla fimm rithöfundar að koma saman og heiðra stórskáldið með upplestri. Skáldin lesa ljóð frá löngum ferli Hannesar og gera grein fyrir vali sínu.

Viðburðurinn fer fram í fyrirlestrasal Eddu (Húsi íslenskunnar), við Arngrímsgötu 5, 23. október kl. 12 og eru allir velkomnir. Boðið verður upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni. Einnig verður nýja bókin fáanleg á sérstöku tilboðsverði.

Fram koma:

Guðmundur Andri Thorsson

Jón Kalman Stefánsson

Karólína Rós Ólafsdóttir

Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Þórdís Gísladóttir

Kynnir er Gauti Kristmannsson, prófessor.

Um Hjá Leyningsvötnum:

Hannes Pétursson hefur verið meðal höfuðskálda þjóðarinnar í rúma sjö áratugi, allt frá því að hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955. Á löngum og farsælum ferli hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ljóðabókina Eldhyl árið 1993. Hannes var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands árið 2022.

Hjá Leyningsvötnum er tólfta ljóðabók Hannesar. Skáldinu er vant einskis á árstíð saknaðarins og hefur ekki dregið úr dirfsku sinni við að takast á við nútímann.

Viðburðurinn er á vegum Benedikt bókaútgáfu í samstarfi við Árnastofnun.