Ljósanótt á KEF

Ljósanótt á KEF

Hotel Keflavik, Vatnsnesvegur 12-14, 230 Keflavík Directions

Wed 02.09.2026 11:00

✨ LJÓSANÓTT Á KEF 2.–6. SEPTEMBER ✨

Það verður sannkölluð Ljósanæturstemning á Hótel KEF dagana 2.-6. september! Konukvöld í KEF SPA, lifandi jazztónlist, Ljósanæturmatseðill, bröns, hádegistilboð og góð tilboð á börunum alla hátíðina.

MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER

💗 KONUKVÖLD Í KEF SPA KL. 20:00–00:00

Við hefjum hátíðina með glæsilegu konukvöldi í KEF SPA!

🎤 Snjólaug Lúðvíksdóttir kitlar hláturtaugarnar

🍫 Tvíburasysturnar hjá Circalo bjóða upp á súkkulaðikynningu

🥂 Stefán Ingi vínþjónn leiðir freyðivínssmökkun á Prosecco, Cava og Crémant í boði Mekka Wines & Spirits

🎁 Veglegir gjafapokar fylgja öllum miðum

🍸 Góð tilboð á KEF SPA Bar

Miðahafar fá auk þess 10% afslátt af mat á KEF Restaurant fyrir viðburðinn. Bókaðu borðið þitt hér á www.kefrestaurant.is

Taktu vinkonurnar, mömmu eða systur með og eigið ógleymanlegt kvöld saman!

👉 Skráning fer fram á www.kefspa.is

Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar.

FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER

🎷 Jazzbandið Þríó skapar ljúfa stemningu á KEF Restaurant kl. 18:00–21:00.

Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar, ásamt lengri opnunartíma á báðum stöðum.

FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER

🥩 Gerðu vel við þig í hádeginu á KEF Restaurant: Nautalund og béarnaise á aðeins 6.000 kr.

🎷 Jazzbandið Þríó heldur stemningunni gangandi á KEF Restaurant kl. 18:00–21:00.

Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar, ásamt lengri opnunartíma á báðum stöðum.

LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER

🥂 Ljósanæturbröns hefst á KEF Restaurant kl. 11:00 – tilvalinn fyrir árgangagönguna!

Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar, ásamt lengri opnunartíma á báðum stöðum.

SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER

Ljúf lok á Ljósanótt með góðum mat og notalegri stemningu. Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar.

🎁 LJÓSANÆTURTILBOÐ Í KEF SHOP

Tilboð verða á völdum gjafabréfum fyrir öll vörumerki KEF alla dagana. Gjafabréfin fást í KEF Shop á www.kef.is/verslun og í móttöku Hótel KEF.

Við hlökkum til að fagna Ljósanótt með ykkur á KEF! ✨

Performers

  • KEF Restaurant
    KEF Restaurant

    We offer a wide selection of small courses where you can choose your own composition of dishes. Fresh local fish and produce daily.

  • Ljósanótt í Reykjanesbæ
    Ljósanótt í Reykjanesbæ

    A celebration event with various activities and a beautiful art exhibition.