Ljósin tendruð á jólatrénu á Jólatorginu á Ráðhústorgi

Ljósin tendruð á jólatrénu á Jólatorginu á Ráðhústorgi

Ráðhústorg, Akureyri, Ráðhústorg, 600 Akureyri Directions

Sat Nov 21 2026 16:00

Söfnumst saman og fögnum aðventunni þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi laugardaginn 21. nóvember kl. 16.

Lúðrasveit Akureyrar 🎷

Jólasveinar 🎅

Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur 🎭

Bæjarstjórinn og sendiherra Danmerkur 🤝

Salka Einarsdóttir 4ra ára tendrar ljósin á trénu ✨

Barnakórar Akureyrarkirkju undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur 🎶

Formlegri dagskrá lýkur fyrir kl. 17 en Jólatorgið verður opið til kl. 18 þar sem söluaðilar í níu skreyttum jólahúsum verða með ýmsan varning til sölu.

Þennan fyrsta dag Jólatorgsins 2026 verða húsin opnuð kl. 15 til að hita upp fyrir tendrun ljósa á jólatrénu okkar.

Jólatorgið verður síðan opið allar helgar fram til jóla, á laugardögum frá kl. 14-18 og sunnudögum kl. 14-17.

Nánari upplýsingar um jólatorgið á Akureyri má finna á hér https://www.visitakureyri.is/is/see-and-do/hatidir-vidburdir/jolatorg-a-akureyri