Loftslagsmál í ljósi vísindanna
Nordic House, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Directions
Tue Nov 03 2026 15:00
Nýtt fyrirkomulag við mat á vísindalegri þekkingu á Íslandi – kynning og samtal um þátttöku
Nýtt fyrirkomulag við mat á vísindalegri þekkingu í loftslagsmálum er fram undan á Íslandi. Hvað felur það í sér og hvernig getur vísindasamfélagið lagt sitt af mörkum?
Landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga boðar til opins kynningarfundar þar sem nýtt fyrirkomulag við samantekt og mat á vísindalegri þekkingu á loftslagsmálum á Íslandi verður kynnt, ásamt tækifærum til þátttöku og samstarfs.
Landsnefndin er skipuð af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og í henni situr fólk úr ólíkum áttum. Hún er hýst hjá Veðurstofu Íslands. Fundurinn er haldinn í samstarfi Veðurstofunnar og Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands.
Á fundinum verður fjallað um hlutverk landsnefndarinnar og hvernig staðið verður að því að draga saman og meta vísindalega þekkingu á umfangi og áhrifum loftslagsbreytinga og mótvægisaðgerðum í íslensku samhengi. Vinnan er unnin af þremur vinnuhópum vísindafólks sem saman leggja grunn að heildstæðu mati á stöðu loftslagsmála á Íslandi:
• Loftslag og loftslagsbreytingar
• Áhrif, aðlögun og viðkvæmni
• Samdráttur í losun og aukin binding
Þekking og þátttaka vísindasamfélagsins, stofnana, fyrirtækja og annarra sérfræðinga er mikilvæg fyrir vinnuna sem fram undan er. Landsnefndin hvetur því alla sem búa yfir viðeigandi sérþekkingu til að kynna sér verkefnið, styðja starfið með virkri þátttöku og taka vel í óskir um samstarf og samtal á næstu misserum.
Fundurinn er opinn öllum áhugasömum.
Boðið verður upp á kaffi og kruðerí.