Málarinn og sálmurinn hans um litinn - Bíótekið!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions
Sun 06.12.2026 14:30
Málarinn og sálmurinn hans um litinn eftir Erlend Sveinsson, er ljóðræn og persónuleg kvikmynd um listmálarann Svein Björnsson, föður leikstjórans.
Myndin hefst á opnun viðamikillar sýningar hans á Kjarvalsstöðum haustið 1989. Eftir áratuga vinnu við fantasíukenndan myndheim stendur listamaðurinn á tímamótum, þreyttur á eigin aðferðum og knúinn til að finna nýja leið í list sinni. Frekar en að vera hefðbundin ævisaga fjallar myndin um sköpunarþrána, efann og þær fórnir sem listin getur krafist.
Hún blandar saman heimild og sviðsetningu og leiðir áhorfandann inn í hugarheim málarans, þar sem litir, íslensk náttúra, trú og sköpunarþrá fléttast saman. Málarinn er næm og sjónræn hugleiðing um listsköpun og baráttu listamannsins við að endurnýja sjálfan sig.
*Sérstakur viðburður. Erlendur Sveinsson, ræðir við áhorfendur um kvikmyndina og viðfangsefni hennar.
Sýnd í Bíótekinu sunnudaginn 6. desember 14:30.
Performers
-
BíótekiðKvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.
-
Kvikmyndasafn Íslands
Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.