Málstofa Barna- og fjölskyldustofu

Málstofa Barna- og fjölskyldustofu

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Wed Oct 28 2026 12:00

Barna- og fjölskyldustofa heldur málstofu undir yfirskriftinni „Börn og geðheilbrigði“ þann 28. október næstkomandi kl. 12-13:30.

Tilgangur þessarar málstofu er að staldra við og skoða stöðu barna og geðheilbrigðis eins og hún birtist okkur í dag, heyra ólík sjónarmið og reynslu þeirra sem koma að málaflokknum og velta fyrir sér hvert skuli stefna og hvernig megi styrkja stuðning og þjónustu til framtíðar.

Eftirfarandi aðilar munu flytja erindi:

- Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi á Landspítalanum

- Sandra Sif Gunnarsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu -heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu í Heilbrigðisráðuneytinu

- Sigríður Gísladóttir, framkvæmdarstjóri okkar heimur

- Auk erindis frá Barna- og fjölskyldustofu þar sem verður farin yfir stöðuna eins og hún birtist í gögnum frá barnaverndarþjónustum

Málstofan er opin öllum og verður bæði haldin í eigin persónu í húsakynnum Barna- og fjölskyldustofu, Borgartúni 21, sem og í streymi.

Þeir sem hafa hug á að mæta í eigin persónu eru beðnir um að láta vita á netfangið malstofa@bofs.is svo við getum gert ráð fyrir nægu sætaplássi.

Ekki þarf að skrá sig á streymið.

Málstofan í eigin persónu: húsið opnar kl 11:30

Málstofa í streymi: útsendingin byrjar kl 11:50

Við hefjum svo málstofuna kl 12 og er hún til 13:30.

Hlekk á streymið má finna hér.

https://events.teams.microsoft.com/event/53ae071e-a1c4-464a-8a8d-90a653b8a2f5@764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4?source=email

Aðgangur ókeypis og öll velkomin!