Málþing til heiðurs Bryndísi Brandsdóttur
Háskóli Íslands - Askja, Sturlugata 7, 102 Reykjavík Directions
Sat Nov 14 2026 10:00
JÖRFÍ og Jarðfræðifélag Íslands með stuðningi Háskóla Íslands halda málþing til heiðurs Bryndísi Brandsdóttur laugardaginn 14. nóvember. Bryndís er félögum JÖRFÍ af góðu kunn enda hefur hún verið vakin og sofin sem ritstjóri Jökuls í meira en aldarfjórðung auk þess að taka virkan þátt í starfi félagsins í um hálfa öld. Hún hefur átt farsælan starfsferil sem jarðskjálftafræðingur við Jarðvísindastofnun/Raunvísindastofnun Háskólans og unnið að fjölda rannsóknarverkefna í samstarfi við marga af færustu sérfræðingum á því sviði. Þó Bryndís sé hvergi nærri hætt þykir okkur tímabært að heiðra nú þessa kjarnakonu sem á svo tryggan stað í hjörtum okkar. Ráðstefnan verður haldin í aðal fyrirlestrarsal Öskju í HÍ en nánari dagskrá verður auglýst síðar. Að sjálfsögðu stefnir Bryndís á árshátíð JÖRFÍ um kvöldið og eru málþingsgestir hvattir til að gera það einnig!