Málþing um Grettis sögu
Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions
Sat Nov 21 2026 13:00
Hin sígilda og margbrotna Grettis saga verður skoðuð frá ýmsum hliðum á þessu málþingi. Fjallað verður um söguna sem margfalda ferðasögu og Gretti sem skáld, förumann og persónu á jaðri samfélagsins. Rýnt verður í sálarlíf hans og kristnar hugmyndir í sögunni, samspil kvæða og prósa og breytingar á textanum í meðförum skrifara. Anna Rós Árnadóttir og Þórarinn Eldjárn flytja ljóð.
Dagskrá:
13:00 Guðvarður Már Gunnlaugsson
Um þáttaskil í sögu(m) Önundar og Grettis
13:30 Brynja Þorgeirsdóttir
Skáldið Grettir: Samspil kvæða og prósa í Grettis sögu
14:00 Anna Rós Árnadóttir flytur ljóð
14:15 Kaffihlé
14:45 Örnólfur Thorsson
Förumaðurinn Grettir – vor samlandi og fulltekinn karl
15:15 Torfi H. Tulinius
Um sálarfræði og kristni í sögu Grettis Ásmundssonar
15:45 Þórarinn Eldjárn flytur ljóð
Nánari upplýsingar um fyrirlesarana, erindi þeirra og skáldin tvö sem flytja ljóð á málþinginu má finna á vef Árnastofnunar: https://arnastofnun.is/is/vidburdir/malthing-um-grettis-sogu