Málverkasýningin Upplausn og blómgun

Málverkasýningin Upplausn og blómgun

Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions

Sat Nov 07 2026 15:00

María Sigríður Jónsdóttir er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám við Ríkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998.

María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu sína við Ísland.

Í verkunum sem eru aðallega unnin með olíu á striga, vinnur hún með áhrif frá ítalska endurreisnartímabilinu og hráan kraft íslenskrar náttúru og birtu. Hún hefur haldið einkasýningar sem og tekið þátt í samsýningum, bæði á Íslandi og á Ítalíu. Verk hennar á þessari sýningu endurspegla þetta stöðuga samtal á milli tveggja landa, þar sem hún vinnur með klassísk form, birtu og hringrás náttúrunnar á kraftmikinn og ljóðrænan hátt.

Um verkin segir María “ Á sýningunni Upplausn og blómgun leitast ég við að fanga það sem liggur á mörkum hins sýnilega og hins dulda, þar sem lífræn form náttúrunnar breytast í innra hugarástand. Form blómsins og hvernig það breytist í tímans rás fylgir þeirri tilfinningu sem ég ber í hjartanu. Með því að vinna með olíu og terpentínu á striga leyfi ég efninu að ráða för, ég leyfi litnum að leysast upp, flæða, renna og leita eigin leiða, hömlur hverfa og eftir standa hughrif. Formin fæðast hægt og rólega úr mörgum lögum af lit, áferð og hreyfingu. Verk mín endurspegla þannig stöðugt samtal á milli þess sem var og nýs veruleika sem hefur í för með sér upplausn en um leið nýja sýn, ný tækifæri og blómgun.”

Í nýjustu verkunum fá blómaformin á sig dularfyllri og óræðari blæ, þar sem lóðréttu, rennandi línurnar flæða niður flötinn eins og tímans rás eða hrein rigning sem bæði máir út og dregur fram kjarna formsins í senn.

Á sýningunni er innsetning af hringlaga málverkum þar sem raunsætt blómaformið verður eins konar náttúruleg mandala, tákn um miðju, kyrrð og hið óendanlega þar sem gott er að staldra við og íhuga.

Þessi ólíku verk af brothættum formum tilverunnar skapa sjónrænan óð til innri blómgunar, fegurðar og krafts til að leysa upp og breyta því sem þarf að breyta.

Performers