Mannauðsmál frá A til Ö
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Feb 03 2027 09:00
Vandað og ítarlegt námskeið þar sem fjallað er um mannauðsmál af öllu tagi, allt frá ráðningu til starfsloka.
Á námskeiðinu er fjallað er um hagnýt atriði mannauðsstjórnunar með skýrum hætti. Stjórnendur standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna breytinga á starfsumhverfinu, en í þeim liggja jafnframt fjölmörg tækifæri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velferð starfsmanna og fjölbreytileiki eru á meðal umfjöllunarefna.
Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust og færni stjórnenda með mannaforráð, m.a. til að leiða einstaklinga og teymi á hvetjandi og uppbyggilegan hátt til aukins árangurs. Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að nýta sér hagnýtar aðferðir mannauðsstjórnunar í starfi sem stjórnendur og stuðla að eigin starfsþróun í síbreytilegu starfsumhverfi.
Námskeiðið er einkum sniðið að stjórnendum sem ekki hafa sérstaka menntun í mannauðsstjórnun og stjórnendum smærri fyrirtækja sem ekki eru með sérstaka mannauðsdeild, en einnig öllum nýjum stjórnendum og millistjórnendum sem vilja efla hæfni sína í mannauðsstjórnun. Efnið nýtist í raun öllum sem vilja tileinka sér fagleg vinnubrögð innan skipulagsheilda og stuðla að heilbrigðu og öflugu starfsumhverfi.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Stjórnendahlutverkið.
- Ráðningarferlið frá A til Ö.
- Starfsmannasamtöl, hvatningu, frammistöðu og endurgjöf.
- Starfsþróun.
- Breytingastjórnun.
- Erfið starfsmannamál.
- Fjölbreytileiki á vinnustöðum.
- Vinnustaðamenningu.
- Samskipti og upplýsingaflæði.
- Velferð á vinnustað.
- Nýja starfsumhverfið – tækifæri og áskoranir.
Ávinningur þinn:
- Aukið öryggi í stjórnendahlutverkinu.
- Aukin færni í ráðningum og nýliðamóttöku.
- Færni til skilvirkari samskipta og til að takast á við erfið starfsmannamál.
- Leikni í að efla liðsheild og stuðla að góðum starfsanda.
- Færni í að leiða fjölbreytilegan starfshóp.
- Færni í að stuðla að markvissri starfsþróun og leiða breytingar.
Nánar um kennara
Kennarar eru þær Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar í mannauðsmálum og eigendur AUKI – mannauður og stjórnendaráðgjöf.
Auk þeirra sinna kennslu:
- Guðríður Sigurðardóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum og einn eiganda Attentus.
- Sigrún Ósk Jakobsdóttir, mannauðsstjóri hjá Advania.
- Hrund Grétarsdóttir, verkefnastjóri menningar hjá Isavia.
- Unnur Ásta Bergsteinsdóttir, lögmaður og eigandi hjá MAGNA lögmönnum.
- Þóra Christiansen, aðjúnkt við HÍ.
- Fleiri gestakennarar verða kynntir síðar.