Með hjartað í frístundastarfinu
Thu Feb 11 2027 10:30
Hvernig má bæta líðan og auka öryggi barna á frístundaheimilum? Á þessu hagnýta námskeiði er kafað ofan í málið á faglegan og gagnlegan hátt.
Á námskeiðinu verður farið yfir meginhlutverk frístundaheimila og hlutverk starfsfólks frístundar. Fjallað verður um leiðir sem miða að því að skapa öryggi og vellíðan barna í frístundastarfi en þar skiptir miklu máli hvernig dagurinn er skipulagður, þátttaka starfsfólks með börnunum, gæði í samskiptum og mikilvægi þess að skapa tengsl og traust milli barna og starfsfólks. Fjallað verður um þessa þætti og einnig um hvernig starfsfólk á frístundaheimilum getur nýtt áhugamál sín og styrkleika í starfinu með börnunum. Þá verður farið yfir birtingarmynd hegðunarfrávika, árangursríkar leiðir til þess að bregðast við tilfinningastjórnun barna og þá þætti sem draga úr líkum á að barn missi stjórn á sér.
Námskeiðið er fyrir starfsfólk frístundaheimila sem starfa með 6 – 9 ára börnum.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Hlutverk starfsfólks á frístundaheimili.
- Helstu leiðir til að skapa öryggi og vellíðan barna í frístundastarfi.
- Skýrt ritað og myndrænt skipulag dagsins fyrir börn og foreldra.
- Mikilvægi leiks og hugmyndir að spennandi verkefnum.
- Hvernig taka má mið af þörfum, þroska og áhuga hvers og eins.
- Hvernig starfsfólk getur nýtt áhugamál sín og þekkingu í starfi.
- Birtingarmynd hegðunarfrávika og leiðir sem minnka líkur á að barn missi stjórn á skapi sínu.
Ávinningur þinn:
- Aukið öryggi um eigin hlutverk og leiðir í vinnu á frístundaheimili.
- Meiri yfirsýn yfir verkefni og hugmyndir að leikjum og viðfangsefnum úti og inni í starfi með börnum.
- Aukin þekking á þeim leiðum sem eru líklegar til að auka öryggi og vellíðan barna.
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið er í fjarkennslu, kennari fer fram á að þátttakendur séu alltaf í mynd á meðan á námskeiðinu stendur og hafi glærur námskeiðsins við hendina. Kennari hvetur þátttakendur til að taka virkan þátt í námskeiðinu, spyrja spurninga og koma með innlegg þegar þeir óska þess líkt og um staðnámskeið sé að ræða.