MIRA - Hnattræn borgaravitund í UNESCO-framhaldskólum á Íslandi
Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Directions
Thu Oct 15 2026 09:30
🌍 MIRA – Hnattræn borgaravitund í UNESCO-framhaldsskólum á Íslandi
Hvernig getum við menntað ungt fólk til að takast á við síbreytilegan heim og hnattrænar áskoranir? Og hvernig geta skólar skapað rými fyrir virkni, lýðræðislega þátttöku og hnattræna borgaravitund?
Á málþinginu verður MIRA kynnt – nýtt rannsóknar- og skólaþróunarverkefni sem hlaut styrk úr Menntarannsóknarsjóði árið 2026. Verkefnið kannar hvernig hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og starfi íslenskra UNESCO-framhaldsskóla og hvernig styðja má ungt fólk til virkrar þátttöku í samfélaginu.
🎤 Á dagskrá:
Eva Harðardóttir, aðalrannsakandi MIRA og lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kynnir verkefnið og samstarfið við íslenska UNESCO-skóla.
Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóri hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, fjallar um hlutverk frjálsra félagasamtaka í að efla hnattræna vitund og virkni ungs fólks.
Dr. Karen Pashby, prófessor við Manchester Metropolitan University, fjallar um mikilvægi menntunar til hnattrænnar borgaravitundar í breyttum heimi.
📅 15. október kl. 9:30–11:30
📍 Auðarsalur, Veröld – hús Vigdísar
Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Kennarar, stjórnendur, nemendur, rannsakendur, stefnumótandi aðilar og öll sem hafa áhuga á menntun og virkni ungs fólks eru sérstaklega hvött til að mæta.
☕ Húsið opnar kl. 9:00 og heitt verður á könnunni.
Nánari upplýsingar: borgaravitund.hi.is