Næring barna og unglinga - hvað skiptir mestu máli?

Næring barna og unglinga - hvað skiptir mestu máli?

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Wed Nov 18 2026 19:30

Hvaða fæðuvenjur skipta mestu máli fyrir góða heilsu barna og unglinga?

Á þessu námskeiði verður farið yfir hvað vísindin segja, hvaða upplýsingar standast skoðun og hvað ber að varast í þeirri upplýsingaóreiðu sem ríkir um mataræði og næringu.

Mataræði barna og unglinga hefur áhrif á vöxt, þroska, líðan og heilsu, en á sama tíma getur verið krefjandi fyrir foreldra og umönnunaraðila að átta sig á því hvaða ráðleggingar skipta mestu máli í daglegu lífi. Upplýsingar um næringu og hollustu eru alls staðar og skilaboðin geta verið bæði misvísandi og ruglingsleg.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu ráðleggingar um mataræði með áherslu á grunnskólabörn og unglinga og hvernig hægt er að útfæra þær í hversdeginum. Fjallað verður meðal annars um mikilvægi fjölbreytts mataræðis, reglulegra máltíða og þess að fullnægja næringarþörf barna og unglinga á mismunandi aldursskeiðum.Einnig verður farið yfir algeng málefni og áskoranir sem foreldrar og umönnunaraðilar standa frammi fyrir, svo sem matvendni, óreglulegar matarvenjur, mikla íþróttaiðkun, ofnæmi og óþol. Áhersla verður lögð á hvernig hægt er að styðja við góðar matarvenjur og jákvætt samband við mat. Ráðleggingar um mataræði verða grundvöllur fræðslunnar og áhersla lögð á einföld og raunhæf ráð sem nýtast í daglegu lífi. Einnig verður fjallað um hvenær þörf getur verið á fæðubótarefnum og hvað ber að hafa í huga við val og notkun þeirra.

Námskeiðið hentar m.a. foreldrum og uppalendum, starfsfólki í grunnskólum, heilbrigðisstarfsfólki, þjálfurum, íþróttakennurum og öðrum sem starfa við heilsueflingu, hreyfingu eða ráðgjöf um mataræði.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvernig hægt er að útfæra ráðleggingar um mataræði í daglegu lífi með áherslu á þarfir barna og unglinga.
  • Mikilvægi reglulegra máltíða og góðrar rútínu í mataræði.
  • Hvernig hægt er að styðja við gott mataræði ungmenna og jákvætt samband þeirra við mat.
  • Algengar áskoranir í mataræði barna og unglinga.
  • Hvernig þörf fyrir næringu getur breyst meðal annars með aldri og mikilli hreyfingu.
  • Hvenær þörf getur verið á fæðubótarefnum og hvað ber að varast í markaðssetningu og upplýsingum um bætiefni.

Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að geta metið betur:

  • Hvaða þættir mataræðisins skipta máli fyrir góða heilsu, vöxt og þroska barna og unglinga.
  • Hvernig hægt er að útfæra helstu ráðleggingar um mataræði á raunhæfan hátt í daglegu lífi.
  • Hvað hentar mínu barni best.
  • Upplýsingar og markaðssetningu um mataræði og fæðubótarefni.