Nærmynd │ Óp. 1, Nr. 3
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions
Sun Dec 06 2026 16:00
Nærmynd er í senn markaður og lifandi listviðburður á vegum Ópus Reykjavík. Í Bíó Paradís mætast bókmenntir, tónlist, myndlist, hönnun og handverk þegar listafólk og skapandi aðilar koma saman með verk sín til sýnis og sölu.
Á dagskránni er upplestur og tónlistarflutningur sem fléttast saman við markaðinn og skapa rými fyrir samtal, samveru og innblástur. Nærmynd er tilefni til að staldra við á aðventunni, njóta þess sem verður til þegar ólíkar listgreinar mætast og finna eitthvað einstakt – hvort sem er fyrir sjálfan sig eða undir jólatréð.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni Ópus Reykjavík og Bíó Paradís. Ókeypis aðgangur.
Á meðal listafólks eru:
Júlíanna Ósk Hafberg
Hildur Ársæls
Brynja Hjálmsdóttir
María Elísabet Bragadóttir
Elín Hansdóttir
Örvar Smárason
Magnús Óli Sigurðsson
Íris Ásmundar
Nicolas Ipina
Saumó - saumað með tilgang