Náttúruvá á Seyðisfirði – kynning og samtal við íbúa
Herðubíó, Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður Directions
Tue Sep 22 2026 10:30
Ísland hefur tekið þátt í evrópsku verkefni sem snýst um að þróa leiðir til að draga úr hættu vegna hamfara af völdum loftslagsbreytinga, með áherslu á vöktun og upplýsingamiðlun.
Valin voru tíu dæmisvæði víðs vegar um Evrópu þar sem íbúar búa við mismunandi náttúruvá. Á Íslandi var Seyðisfjörður aðaldæmisvæðið og þar var unnið með ofanflóðahættu. Markmið íslenska hópsins var að þróa nýjan vef fyrir íbúa sem búa við náttúruvá, þar sem helstu upplýsingar og bjargir væru aðgengilegar á einum stað.
Nú hillir undir lok verkefnisins og tímabært er að kynna fræðsluefnið og nýju vefina. Þetta er síðasti hluti verkefnisins og gott tækifæri til að fá viðbrögð íbúa áður en lokaútgáfur verða settar í loftið.
Verkefnið, svokallað HuT, hefur staðið yfir í fjögur ár og lýkur á næstu mánuðum. Það er styrkt af Evrópusambandinu og að því koma 12 þátttökuþjóðir. Fulltrúar Íslands í verkefninu eru Veðurstofa Íslands, Almannavarnir og Austurbrú.
Við bjóðum öllum áhugasömum að kynna sér fræðsluefnið og vefina og veita okkur endurgjöf um það sem betur mætti fara.
Við verðum í Herðubreið þriðjudaginn 22. september og höldum tvo opna fundi, kl. 10:30 og 13:00. Sá seinni verður á ensku.