Niewinni czarodzieje (Innocent Sorcerers) - Bíótekið!

Niewinni czarodzieje (Innocent Sorcerers) - Bíótekið!

Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions

Sun 06.12.2026 19:30

Saklausir töframenn í leikstjórn Andrzejs Wajda, er fáguð og lágstemmd mynd af ungu fólki í Varsjá á mörkum sjötta og sjöunda áratugarins. Í stað stórra sögulegra átaka, sem einkenndu fyrri myndir Wajda, beinir hann hér sjónum að nýrri kynslóð sem leitar frelsis í djassi, næturlífi, daðri og nútímalegum lífsstíl.

Sagan fylgir ungum lækni og djassleikara sem kynnist dularfullri stúlku á skemmtistað. Þau verja nóttinni saman og fela óöryggi sitt á bak við kaldhæðni og kæruleysi. Eftir því sem líður á nóttina verður þó ljóst að undir yfirborðinu býr þrá eftir raunverulegri nánd. Með svölum stíl og djassmúsík Krzysztofs Komeda fangar myndin líf unga fólksins í Póllandi eftir stríð sem reynir að skapa sér sína eigin tilveru þar sem frelsi er enn takmarkað.

Kvikmyndin var mikið gagnrýnd af yfirvöldum sem vildu meina að hún upphefði kæruleysi ungu kynslóðarinnar og áhugaleysi hennar á pólitík.

* Sérstakur viðburður. Kvikmyndin er sýnd í samstarfi við Pólska Sendiráðið í Reykjavík.

Sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 6. desember kl 19:30.

Performers

  • Bíótekið
    Bíótekið

    Kvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.

  • Kvikmyndasafn Íslands
    Kvikmyndasafn Íslands

    Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.