Norðurljósafræðsla með Sævari Helga - Námskeið fyrir félagsfólk VR

Norðurljósafræðsla með Sævari Helga - Námskeið fyrir félagsfólk VR

Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík Directions

Thu Sep 17 2026 17:15

Viltu læra meira um eitt magnaðasta náttúrufyrirbæri Íslands? 🌌

VR býður félagsfólki sínu á fræðslukvöld um norðurljós þar sem Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur og vísindamiðlari, leiðir þátttakendur inn í heillandi heim norðurljósanna

Námskeiðið verður haldið bæði í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í beinu streymi á Teams, fimmtudaginn 17. september kl. 17:15. Húsið opnar kl. 17:00.

Námskeiðið er einkum ætlað félagsfólki sem starfar við leiðsögn, en er opið öllu fullgildu félagsfólki VR sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á norðurljósum og miðlun þeirra.

Fjallað verður almennt um vísindin á bak við norðurljós. Rýnt verður í ýmis konar geimveðurgögn sem auðvelda leiðsögufólki að sjá norðurljós og átta sig á hvenær líkur eru á að þau kvikni. Skoðaðar verða norðurljósahviður og merki um þær í segulmælingum. Þá verður stiklað á stóru um ljósmyndun norðurljósa og tæpt á öðru sem sjá má á himni á meðan beðið er eftir norðurljósum.

Skráning: https://bitly.cx/0XbI

Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir þátttöku á staðnum og í gegnum Teams. Þátttakendur sem velja að taka þátt í gegnum Teams fá sendan tengil á fundinn áður en námskeiðið hefst.

Við hlökkum til að sjá ykkur – hvort sem er á staðnum eða í fjarfundi!