Norræn sönggleði – frá kirkju til kráar
Laugarneskirkja, Kirkjuteigur 12, 105 Reykjavík Directions
Sat Oct 03 2026 17:00
Norræn sönggleði – frá kirkju til kráar
Tónleikar í Laugarneskirkju laugardaginn 3. október kl. 17
Söngfjelagið og Gamle Oslo kro- og kirkekor (GOKK)
Aðgangseyrir 2500kr. Miðasala við innganginn.
Gamle Oslo kro- og kirkekor (GOKK) er blandaður kór frá Noregi. Nafnið má útleggja sem Kráar- og kirkjukór gömlu Óslóar og efnisskráin er fjölbreytt eftir því: Andleg jafnt sem veraldleg tónlist frá ólíkum tímabilum og í ýmsum útfærslum.
Á tónleikunum í Laugarneskirkju verða flutt nokkur af uppáhaldslögum kórsins, meðal annars lög frá 40 ára afmælistónleikum GOKK, þar sem nýlega samin norræn tónlist var í fyrirrúmi.
Söngfjelagið
Söngfjelagið er blandaður kór undir stjórn Lilju Daggar Gunnarsdóttur, stofnaður 2011 og löngu orðinn kunnur í tónlistarlífi höfuðborgarinnar.
Fastir liðir á verkefnaskrá kórsins eru árlegir aðventutónleikar og sumarfagnaður á síðasta vetrardag. Þess á milli flytur Söngfjelagið þjóðlög, jazz, klezmer, klassík og hvaðeina sem andinn blæs kórnum í brjóst. Einu er þó ávallt hægt að ganga að sem vísu; sönggleðin er í fyrirrúmi.
Kórarnir syngja nokkur lög hver í sínu lagi og spreyta sig einnig á því að syngja saman, á norsku jafnt sem íslensku.
Aðgangseyrir er 2500kr. Miðasala við innganginn