Norræni leshringurinn - fyrsti hittingur
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions
Thu 17.09.2026 19:00
Verið velkomin á fyrsta fund Norræna leshringsins sem er samstarfi Bókasafns Garðabæjar og Norræna félagsins í Garðabæ.
Útvarpskonan Jórunn Sigurðardóttir leiðir leshringinn og eru lesnar norrænar bókmenntir sem komið hafa út í íslenskri þýðingu. Jórunn hefur áratuga reynslu af umfjöllun um bókmenntir og má meðal annars nefna útvarpsþáttinn Orð um bækur sem hún stýrði á Rás 1.
Í haust verður lesin annars vegar spennusaga og hins vegar skáldsaga úr flokki fagurbókmennta hverju sinni.
Áhugasöm geta haft samband á netfangið: bokasafn@gardabaer.is til þess að skrá sig.
Leshringurinn hittist mánaðarlega yfir vetrartímann, þriðja fimmtudag í mánuði kl. 19.
Myndin af Jórunni var tekinn af Degi Gunnarssyni