Núvitund með Evu Rós - 4 vikna námskeið í Yoga Shala Reykjavík
Yoga Shala, Skeifan 7, 108 Reykjavík Directions
Tue 08.09.2026 19:00
Núvitund með Evu Rós leiðir saman aðferðir úr klínískri sálfræði, jógafræðum og búddisma. Farið verður í gegnum ávinning núvitundar, áhrif hennar á lífsgæði, tilfinningar og sálarlíf, og hvernig hún nýtist í samskiptum. Námskeiðið verður kennt frá 8. til 29. september á þriðjudögum frá 19:00 - 21:00 og kostar 21.900 kr.
Núvitund með Evu Rós er fyrir þau sem langar að kynnast núvitundariðkun betur, hvort sem það eru fyrstu skrefin eða dýpkun á iðkuninni. Fyrir þau sem vilja hlúa að sjálfu sér og leyfa öðrum í kringum sig njóta góðs af iðkuninni og draga úr streitu í sínu eigin lífi.
Nánari upplýsingr um námskeiðið má finna hér: www.yogashala.is/nuvitund