Ómi söngur í hamranna hlíð
Mikligarður | Menntaskólinn við Hamrahlíð, Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík Directions
Sat Nov 07 2026 16:00
Ómi söngur í hamranna hlíð
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tvenna tónleika í hátíðarsal skólans laugardaginn 7. nóvember kl 16 og kl 18. Hefðbundin kórverk hljóma í bland við frumflutning verka. Í tilefni af 60 ára afmæli skólans var efnt til tónverkakeppni og á tónleikunum mun Kór MH frumflytja verðlaunaverk keppninnar eftir tónskáldið Björn Önund Arnarsson. Gestakór verður Kammerkórinn Huldur sem fagnar 5 ára afmæli á þessum tónleikum. Stjórnandi er Hreiðar Ingi Þorsteinsson.