Óperudagar 2026: Ljóð fyrir framtíðina | Fjölskyldudagskrá Hörpu

Óperudagar 2026: Ljóð fyrir framtíðina | Fjölskyldudagskrá Hörpu

Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions

Sat Oct 31 2026 11:00

Ljóð fyrir framtíðina

 Staður: Norðurljós í Hörpu
 Dagsetning: Laugardagur 31. október
 Tími: Kl. 11:00
 Aldur: 5–15 ára
 Aðgangur: Ókeypis
 Í samstarfi við: Óperudaga

Hvernig hljómar framtíðin þegar börn fá að yrkja um hana?

Í Ljóðum fyrir framtíðina mætast ljóð, tónlist og myndlist í fjölbreyttri og skapandi dagskrá þar sem sköpunarkraftur barna er í aðalhlutverki. Barnakórar og söngvarar flytja ný og eldri verk eftir íslensk og norræn tónskáld við ljóð barna.

Krakkar stíga einnig sjálf á svið og lesa upp eigin ljóð og myndverkum þeirra verður varpað á skjá meðan á tónlistarflutningnum stendur. Hér fá raddir, hugmyndir og listsköpun barna að njóta sín – og framtíðin er þeirra að túlka.
Börnum og forráðamönnum sem hafa áhuga á að senda inn ljóð og myndir og taka þátt í verkefninu er bent á ljodfyrirframtidina.is.

Þátttakendur:
Barnakór Laugarneskirkju
Barnakór Seltjarnarneskirkju
Kvartett Óperudaga
Listahópurinn Húmat, á vegum Félags Írana á Íslandi