Opin vinnustofa - leirmunir og jólakakó

Opin vinnustofa - leirmunir og jólakakó

Brattatunga 3, 200 Kópavogsbær, Ísland, Brattatunga 3, 200 Kópavogur Directions

Sun Nov 29 2026 14:00

Í tilefni af aðventunni og á þessum dimmasta tíma ársins langar mig að opna dyrnar að vinnustofunni minni og heimili og bjóða ykkur að koma inn, skoða leirmunina sem ég hef verið að móta og eiga notalega stund yfir heitu kakói og piparkökum.

Mér finnst eitthvað svo jarðtengjandi að vinna með leir eins og fólk hefur gert í þúsundir ára og búa til hlut sem fer svo heim til einhvers. Það er fallegt að hugsa til þess að munirnir eignist sinn stað á heimili og verði hluti af daglegu lífi einhvers. Sjálfri þykir mér líka vænt um að hafa handgerða hluti í kringum mig.

Á opnu vinnustofunni verð ég meðal annars með bolla, skálar, saltskeiðar, kertastjaka, jólabjöllur og litlar friðardúfur sem má hengja á jólatréð eða útí glugga. Allir hlutirnir eru handmótaðir og engir tveir eins. Munirnir verða til sýnis og sölu, bæði niðri á vinnustofunni og uppi í stofu.

Verið hjartanlega velkomin að líta við, skoða og fá ykkur kakóbolla.

29. nóvember og 6. desember kl. 14–18

Bröttutungu 3 - Kópavogi

Ef þið komist ekki þessa daga er líka velkomið að hafa samband og mæla sér mót við mig í desember.

Performers