Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar í Perlunni

Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar í Perlunni

Perlan, Perlan 1, 105 Reykjavík Directions

Wed Sep 30 2026 19:00

Tryggðu þér miða á Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Perlunni 30. september –

Bleika slaufan fylgir hverjum miða

Vertu með okkur á einstöku kvöldi þegar við fögnum saman upphafi Bleiku slaufunnar, árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins gegn krabbameini hjá konum. Viðburðurinn verður haldinn í einu glæsilegasta kennileiti Reykjavíkur, Perlunni.

Húsið opnar kl. 17:30 og boðið verður upp á bleikan óáfengan fordrykk. Við hvetjum gesti til að mæta tímanlega til að skoða einstakar sýningar Perlunnar og heimsækja íshellinn áður en formleg dagskrá hefst kl. 19:00. Samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar verða á sínum stað og kynna og selja bleikar vörur til styrktar átakinu.

Stórglæsileg dagskrá hefst kl. 19:00 á sviðinu á 5. hæð.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem við m.a. frumsýnum auglýsingu Bleiku slaufunnar og nokkrir af okkar ástsælustu tónlistarmönnum stíga á stokk:

  • Páll Óskar
  • Ragnhildur Gísladóttir og Halldór Gunnar
  • Sigríður Thorlacius
  • Valdimar

Ólafía Hrönn stýrir veislunni.

Dagskrá lýkur kl. 21:00 og húsið lokar.

Aðgangsmiði á opnunarhátíðina kostar kr. 8.900. Bleika slaufan fylgir hverjum miða og verður afhent við innganginn.

Tryggðu þér miða og vertu með okkur á ógleymanlegu bleiku kvöldi í Perlunni!


Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein. Stuðningur einstaklinga og fyrirtækja er forsenda fyrir starfi félagsins, sem byggir alfarið á söfnunarfé.

Við hlökkum til að sjá þig í Perlunni þann 30. september.