Ör-kveikja #2: AI + fjármál í samstarfi við Eldingu

Ör-kveikja #2: AI + fjármál í samstarfi við Eldingu

Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10, 101 Reykjavík Directions

Wed Oct 28 2026 08:30

Getur gervigreind hjálpað okkur að spá betur fyrir um bókanir og sjóðstreymi? Hvar sparar hún tíma í bókhaldi, reikningagerð og verðlagningu? Hvar liggja áhætturnar þegar við treystum vélinni fyrir tölunum?

Engar glærusýningar. Stutt innlegg og opið samtal þar sem allir í salnum eru hluti af panelnum. Komdu með spurningarnar þínar, reynslusögurnar og jafnvel mistökin. Það er þaðan sem besti lærdómurinn kemur.

Húsið opnar kl. 8:30 með rjúkandi kaffi og kveikjan sjálf er frá kl. 9 til 10.

Aðeins 30 sæti eru í boði og klasafélagar ganga fyrir.

Skránig er mikilvæg - sjá hlekk í viðburði.

Ör-kveikjurnar eru hluti af gervigreindarvegferð Íslenska ferðaklasans í haust og vetur. Lokakveikjan, AI + stjórnun og rekstur, fer fram hjá Icelandia 18. nóvember.