Orphei Drängar í Hallgrímskirkju

Orphei Drängar í Hallgrímskirkju

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Directions

Sat Oct 17 2026 16:00

Í tilefni af aldarafmæli Karlakórs Reykjavíkur mun hinn heimsþekkti sænski karlakór Orphei Drängar heiðra þau tímamót á hátíðartónleikum laugardaginn 17. október kl. 16:00 í Hallgrímskirkju.

Orphei Drängar (OD) var stofnaður í Uppsölum árið 1853 og er í fremstu röð karlakóra í heiminum. Kórinn er rómaður fyrir einstaka hljómfegurð, dýpt og kraftmikinn flutning sem spannar allt frá ástsælum norrænum kórperlum til glæsilegra nútímaverka m.a þeirra íslensku höfunda, Hildi Guðnadóttur og Þorkel Sigurbjörnsson.

Í lok tónleikanna sameinumst við í kraftmikinn 200 manna kór sem mun njóta sín vel í stórbrotnu hljómrými Hallgrímskirkju.