POP QUIZ x HREIMUR - MÚLABERG

POP QUIZ x HREIMUR - MÚLABERG

Múlaberg Bistro & Bar, Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri Directions

Sat Oct 17 2026 21:00

POP QUIZ MEÐ HREIMI SNÝR AFTUR! 🎶🧠

Síðasta Pop Quiz með Hreimi á Múlabergi sló heldur betur í gegn – það varð fljótt uppselt og biðlisti myndaðist svo við endurtökum leikinn!

Lífið verður svo sannarlega yndislegt laugardaginn 17. október kl. 21:00 þegar tónlistarmaðurinn Hreimur mætir aftur á Múlaberg og heldur eitt af sínum vinsælu Pop Quiz kvöldum.

Það verður nóg um að vera – tónlist, pop culture, skemmtilegar spurningar og góð stemning. Hreimur heldur utan um fjörið og tekur að sjálfsögðu einnig nokkur vel valin lög yfir kvöldið.

🎶 Pop Quiz & tónlistarspurningar

🎤 Lifandi tónlist með Hreimi

🍻 Tilboð á barnum

🏆 Glæsilegir vinningar fyrir 1., 2. og 3. sæti

Safnaðu liðinu, dustaðu rykið af tónlistar- og poppmenningarþekkingunni og vertu með í einu skemmtilegasta quiz-kvöldi vetrarins!

→ Frítt inn en nauðsynlegt er að bóka borð til að tryggja sér sæti.

Síðast varð uppselt og biðlisti – við mælum því með að bóka tímanlega!

20 ára aldurstakmark.

Performers