Ráðstefna: Walker 100 ára
Frystihúsið, Sólvellir 23, 760 Breiðdalsvík Directions
Wed Sep 30 2026 18:00
Þann 2. mars 2026 voru 100 ár liðin frá fæðingu George P.L. Walker, eins helsta frumkvöðuls í rannsóknum á íslenska gosbergsstaflanum og almennri jarðfræðikortlagningu hér á landi.
Í tilefni þessa og til að minnast arfleifðarinnar sem Walker lagði til íslenskrar jarðfræði verður blásið til þriggja daga ráðstefnu á Breiðdalsvík, sem var ein af bækistöðvum Walkers þegar hann stundaði rannsóknir sínar á Íslandi á árunum 1955-65. Ráðstefnan er dagana 30. september til 2. október og þátttakendafjöldi afmarkast við 50-70 manns. Ráðstefnan saman stendur af tveimur dagsferðum um Austurland (dagar 1 og 3), þar sem jarðfræðileg fótspor Walkers á Austurlandi verða rakin að hluta, og svo eins dags fundi (dagur 2) þar sem við rifjum upp framlag Walkers til jarðfræðinnar ásamt rekistefnu, á formi innsendra fyrirlestra og veggspjalda, um þemu og stefnu jarðfræðirannsókna á gosbergstafla Austurlands, Tröllaskaga, Skaga, Hreppamyndunarinnar, Vesturlands og Vestfjarða til framtíðar – í anda Walkers. Frekari upplýsingar um dagskrá, skráningu, skráningargjald, dagskrá, þemu og ágrip ásamt gistingu og upplýsingum um ferðamáta má finna hér: Skráning og frekari upplýsingar Úr skissubók Walkers Dagskrá ráðstefnu í tilefni af 100 ára afmæli Walkers 30. september–2. október 2026 Dagur 1 – 30. september Jarðfræði norðanverðra Austfjarða Jarðlög sem mynduðust ofan sjávarmáls: súr eldvirkni megineldstöðvanna borin saman við stafla basalthraunlaga frá Reyðarfirði til Breiðdals. Kl. 18:00 – Móttaka Dagur 2 – 1. október Ráðstefna Sköpunarmiðstöðin. Hátíðarkvöldverður á Hótel Breiðdalsvík Valfrjáls þátttaka. Dagur 3 – 2. október Innskotsjarðfræði sunnanverðra Austfjarða Kvikuhólf, syllur og berggangar á svæðinu frá Lóni til Breiðdalsvíkur. Dagskrá erinda 1. október Dagskráin hefst kl. 7:50. A. George P. L. Walker – sögulegt og vísindalegt samhengi 1. Setning og ávarp Jóna Árný bæjarstjóri Fjarðabyggðar 2. Aðalfyrirlestur 1 Ævi og starfsferill eldfjallafræðingsins George Walker (1926–2006) Steve Self, University of California, Berkeley, Bandaríkjunum Steve Sparks, University of Bristol, Bretlandi Geoff Wadge, University of Reading, Bretlandi (látinn) 3. Aðalfyrirlestur 2 Eldvirkni, þróun og bygging Íslands – helstu viðfangsefni og næstu skref Gillian Foulger, Durham University, Durham, Bretlandi Thor Thordarson, Háskóla Íslands, Reykjavík Kaffihlé B. Vísindadagskrá Dagskráin hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 17:40. Veggspjaldakynning fer fram kl. 18:10–19:10. Yfirþema ráðstefnunnar Hvaða hlutverki gegnir jarðfræði Íslands og sambærilegra svæða við Norður-Atlantshaf og annars staðar í heiminum við að auka skilning okkar á ferlum sem stýra eldvirkni á svæðum þar sem basalt er ríkjandi? Málstofa 1 Ísland sem vettvangur rannsókna í eðlisrænni eldfjallafræði Kl. 10:00–12:20 Munnleg erindi Óskarsson B. V. George Walker og jarðlagaskipan flæðibasalta á Austurlandi. Friðleifsson G. Ó. Kortlagning jarðlaga á svæði þar sem líkan hafði þegar verið mótað af meistaranum – varnaðarorð. Askew A. R. o.fl. SECRET-eldstöðvarnar á Suðausturlandi – kortlagning tengsla djúpbergs og gosmyndana milli Slaufrudalsinnskotsins og gosmyndana. Karlstrom L. o.fl. Tímalengd kvikuflæðis í berggöngum flæðibasalta og notkun vélanáms til að greina erfðafræðileg efnatengsl milli aðliggjandi eininga Columbia River-flæðibasaltanna í Bandaríkjunum. Vye-Brown C. o.fl. Uppbygging hraunlaga og dreifing gosopa í Dabbahu-megineldstöðinni og Manda Hararo-gossprungusveimnum í Eþíópíu. Brum da Silveira D. o.fl. Sveinagígar urðu ekki til í einu eldgosi: Ný gjóskutímatalsgögn sýna margþætta þróun á nútíma á Norðausturlandi. Lestrange G. o.fl. Gjóskan frá gervigígaþyrpingu Leiðólfsfells: Ný sýn á langvarandi gervigígagos. Veggspjöld Askew R. A. og Guðmundsdóttir M. H. Jarðfræðikort Íslands í mælikvarðanum 1:250.000: Stafræn umbreyting og nútímavæðing eldri gagnasafns. Kshirsagar R. o.fl. Handan samspils kviku og eldsneytis-kælivökva (MFCI): Líkanagerð á virkni stróka og gosmekkja í blautum basaltgosum. Mazur W. o.fl. Rannsókn á uppruna einingar 6 og tilheyrandi gjallkornaslóða úr Eldgjárgosinu 937–940. Thordarson T. o.fl. Flæðigosið í Eldgjá 937–940: Sprengivirkni og efnasamsetning kviku. Thordarson T. Myndun og útbreiðsla basískra hraunbreiða. Hádegishlé – 40 mínútur Málstofa 2 Ísland og sambærileg svæði sem vettvangur kvikufræðilegra rannsókna Kl. 13:00–15:20 Munnleg erindi Tegner C. o.fl. Bergfræði nýlífsaldarinnskota og eldstöðva á Austurlandi. Franzson H. Basaltjarðlagastaflinn frá tertíer í Hvalfirði á Vesturlandi: Milljón ára þróun sprungusveims. Gallagher C. o.fl. Tímalegt og byggingarlegt samspil súrra megineldstöðva og granítinnskotsins í Slaufrudal á Suðausturlandi. Torfadóttir H. K. o.fl. Bergfræðileg uppbygging Ingólfshöfða og tengsl hennar við Öræfajökul. Zierenberg R. o.fl. Ummyndaðir staflaðir berggangar úr borholu IDDP-2 á Reykjanesi. Guðmundsdóttir M. H. o.fl. Borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands. Thordarson T. o.fl. Kvikuhreyfingar Fagradalsfjallseldanna 2021–2023 á Reykjanesgosbeltinu. Veggspjöld Burchardt S. o.fl. Á ég að vera eða springa? Myndun og gos úr grunnstæðu granítkvikuhólfi – Reyðarártindsinnskotið á Suðausturlandi. Gallagher C. o.fl. Ný aldursgreiningargögn benda til meira en átta milljóna ára samfelldrar súrrar eldvirkni á Suðausturlandi. Árnadóttir S. o.fl. Torfufell í tímans rás: Þróun síðmíósenskrar megineldstöðvar á Norðurlandi. Askew R. A. o.fl. Samsetti berggangurinn í Streitishvarfi: Vettvangsrannsókn á blöndun basískrar og súrrar kviku í grunnum berginnskotum á Íslandi. Butler F. o.fl. Blandast eða blandast ekki? Rannsókn á myndgerðareinkennum tvískiptra kvikukerfa með dæmum úr Norður-Atlantshafseldfylkinu. Li K. S. J. Dreifing járns við hlutkristöllun granats úr basaltkviku. Kaffihlé – 20 mínútur Málstofa 3 Ísland og Norður-Atlantshafseldfylkið sem vettvangur rannsókna á jarðbyggingu Kl. 15:40–17:40 Munnleg erindi Burchardt S. o.fl. Áfangaskipt myndun stærsta granítinnskots Íslands – ný sýn á byggingu og jarðfræðilegt umhverfi Slaufrudalsinnskotsins. Árnason K. o.fl. Hið ráðgátukennda djúpa leiðnilag í jarðskorpu Íslands. Rougemont R. o.fl. Aflögun í tengslum við myndun Eystrahornsinnskotsins á Austurlandi. Höskuldsson Á. o.fl. Rof á Austurlandi og myndun landgrunnsins. Planke S. o.fl. Ísland sem vettvangsrannsóknarstofa til að skilja jarðskjálftagögn og borkjarnagögn frá eldvirku landgrunnsjaðri Vøring. Di Rienzo D. I. og Friðriksson Þ. Óhefðbundnar jarðhitaauðlindir. Veggspjöld Burchardt S. o.fl. Tímasetning aflögunar í tengslum við myndun Sandfells-lakkólítsins. Yaasameen S. og De Pascale G. Húsavíkur–Flateyjar-misgengið: Sniðgengiskerfi fast milli gliðnunarbeltanna. Foulger G. Meginlandsskorpa undir Grænlands–Íslands–Færeyjahryggnum. De Pascale G. Rannsóknir á samspili jarðskorpuhreyfinga og eldvirkni á Íslandi næstu 100 árin – í ljósi síðustu fimm ára. Kl. 17:40–18:10 – Pallborðsumræður 30 mínútur. Kl. 18:10–19:10 – Veggspjaldakynning 60 mínútur. Kl. 20:00–22:00 – Ráðstefnukvöldverður