Ræðunámskeið JCI Íslands

Ræðunámskeið JCI Íslands

JCI house, Hellusund 3, 101 Reykjavík Directions

Thu Oct 22 2026 20:00

Innihald námskeiðs

Á Ræðu 1 eru þátttakendur þjálfaðir í grundvallaratriðum ræðumennskunnar og fá tækifæri að flytja ræður fyrir hin ýmsu tilefni.  Meðal þeirra má nefna tækifærisræður, mótmælaræður, söluræður og kappræður og eru þátttakendur þjálfaðir jafnframt í líkams- og raddbeitingu, notkun hjálpargagna við flutning o.fl.

Fyrirkomulag

Námskeiðið tekur í heild 6 kvöld og þátttakendur semja og flytja ræður fyrir öll kvöldin utan þess fyrsta.

Æskilegur fjöldi þátttakenda er 8-12 manns á hverju námskeiði. Þess má geta að þetta námskeið er viðurkennt af öllum stéttarfélögum sem veita í mörgum tilfellum styrki fyrir þessu námskeiði.  JCI félögum stendur það hinsvegar til boða innifalið í árs félagsgjaldi.

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Námskeiðið samanstendur af 6 kvöldstundum og fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00
Dagsetningar:

  • Kvöld 1: 1. október
  • Kvöld 2: 8. október
  • Kvöld 3: 15. október
  • Kvöld 4:  22. október
  • Kvöld 5: 29. október
  • Lokakvöld: Dagsetning ákveðin í sameiningu með þátttakendum.

JCI stendur fyrir Junior Chamber International.

JCI er fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 40 ára sem hefur áhuga og metnað til þess að efla hæfileika sína og hafa jákvæð áhrif. Undirstaða starfsins er að efla þig sem einstakling, gefa þér tækifæri til að beita þeirri þekkingu sem þú hefur öðlast og gera þig þannig að færum leiðtoga, sem er tilbúinn til að takast á við stjórnun og ábyrgð í athafnalífi og félagslífi.