Rekstraráætlun - gerð, uppbygging, gervigreind
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Feb 01 2027 12:30
Lærðu að nýta gervigreind á ábyrgan hátt við gerð rekstraráætlunar og kynntu þér uppbyggingu og helstu þætti þessa lykilplaggs í stjórnun fyrirtækja.
Rekstraráætlun er lykilplagg í stjórnun fyrirtækja – hún endurspeglar markmið eigenda og stjórnenda og þjónar sem áttaviti í daglegri starfsemi. Á þessu námskeiði er farið yfir uppbyggingu og helstu þætti rekstraráætlunarinnar, ásamt því að sýnt er hvernig gervigreind getur stutt við gerð hennar og eflt ákvarðanatöku.
Þátttakendur fá innsýn í hvernig hefðbundnar aðferðir við áætlanagerð má bæta með gervigreindarlausnum sem auðvelda skipulagningu, nákvæmari spár og stöðugt endurmat á forsendum. Einnig verður fjallað um notkun rúllandi áætlana og hvernig þær nýtast í innkaupa- og birgðastýringu.
Námskeiðið hentar stjórnendum, fjármálastjórum, frumkvöðlum og öllum þeim sem vilja efla færni sína í áætlanagerð og kynnast nýtingu gervigreindar til að styðja við betri ákvarðanatöku.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Uppbyggingu rekstraráætlana og helstu grunnþætti þeirra.
- Þátttakendur læra að bera saman áætlanir og rauntölur og nýta niðurstöður í ákvarðanatöku.
- Hvernig ný tækni, sérstaklega gervigreind, getur einfaldað vinnuferla, stutt við tekju- og kostnaðaráætlanir og veitt innsýn í nýjar leiðir til að skipuleggja verkefni.
- Sérstök áhersla verður á notkun gervigreindarlausna í áætlanagerð, söluspám og yfirferð á forsendum.
Ávinningur þinn:
- Skýr sýn á tilgang, uppbyggingu og lykilþætti rekstraráætlunar.
- Reynsla af gerð rekstraráætlunar með því að vinna hnitmiðuð verkefni í tímum.
- Kunnátta í að nýta gervigreindarlausnir við áætlanagerð, söluspár og við mat á rekstrarlegum forsendum.
- Færni til að innleiða rúllandi áætlanir og tengja þær við innkaupa- og birgðastýringu.