Róm - borgin eilífa
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Nov 23 2026 19:00
Í Róm fléttast saman á einstakan hátt fornar minjar, glæsilegir gosbrunnar, þröngar götur og lifandi borgarmenning.
Á þessu námskeiði verður borgin skoðuð bæði í sögulegu samhengi og sem heillandi áfangastaður fyrir ferðalanga í dag.
Á fyrra námskeiðskvöldinu verður stiklað á stóru í sögu Rómar, allt frá Rómúlusi og Remusi til þess tíma þegar Róm varð höfuðborg sameinaðrar Ítalíu. Markmiðið er ekki að kafa djúpt í einstök tímabil, heldur veita þátttakendum skýra yfirsýn yfir helstu kafla í sögu borgarinnar og hvernig þeir hafa mótað Róm eins og við þekkjum hana í dag.
Á síðara námskeiðskvöldinu verður sjónum beint að hagnýtum atriðum sem gagnlegt er að þekkja áður en haldið er af stað til Rómar. Sagt verður frá hverfum borgarinnar og sérkennum þeirra, samgöngum, stöðum sem vert er að heimsækja og ýmsum minna þekktum stöðum sem aðeins heimafólk þekkir.
Námskeiðið hentar jafnt þeim sem eru að heimsækja Róm í fyrsta sinn og þeim sem hafa áður komið til borgarinnar en vilja kynnast henni betur. Engrar fyrri þekkingar er krafist — aðeins áhuga og forvitni um eina merkilegustu borg Evrópu.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Stiklað á stóru um sögu Rómar.
- Helstu söguleg tímabil og áhrif þeirra á borgarmyndina.
- Helstu kennileiti borgarinnar.
- Hverfi Rómar og sérkenni þeirra.
- Menningu, mannlíf og daglegt líf í borginni.
- Ýmis hagnýt ráð fyrir ferðalanga.
Ávinningur þinn:
- Þú færð yfirsýn yfir sögu og þróun Rómar.
- Þú kynnist helstu hverfum borgarinnar og sérkennum þeirra.
- Þú færð hagnýt ferðaráð og uppgötvar áhugaverða staði sem margir ferðalangar missa af í Róm.