Róshildur og Lúpína - Í rauðum fötum
Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions
Wed Dec 09 2026 18:00
Róshildur og Lúpína klæða sig í rautt og syngja jólin inn.
Lúpína og Róshildur leiða saman hreindýr sín og bjóða í hátíðlega stund þar sem þær flytja saman jólasálma og jólapopp í bland við þeirra eigin frumsömdu lög. Báðar eru þær þekktar fyrir tilraunakennda popptónlist í bland við persónulega texta, og munu nú sameina krafta sína og fylla Fríkirkjuna af jólastemningu. Klæddu þig í rautt og syngdu inn jólin með Róshildi og Lúpínu.
Húsið opnar kl. 17:30 og tónleikar hefjast kl. 18:00.
Fyrir og eftir tónleikana verður hægt að kaupa vínylplötur og varning fyrir jólapakkann.