Sæfari í Hannesarholti
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Fri 09.10.2026 20:00
Sæfari í Hannesarholti
Sæfari heldur tónleika í Hannesarholti og flytur þar að mestu ný lög af væntanlegri plötu sem nú er í vinnslu.
Lögin eru enn að finna sitt form og fá hér að heyrast áður en þau hafa fest sig endanlega í sessi — óslípuð, opin og nálægt upprunanum.
Á efnisskránni verður fyrst og fremst nýtt efni, en mögulega rata eldri lög með inn á milli.
Kvöld fyrir ný lög, í nándinni í Hannesarholti.