Sæskrímslabúrið – Seyðisfirði

Sæskrímslabúrið – Seyðisfirði

Herðubreið, Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður Directions

Tue Sep 22 2026 16:00

Sæskrímslabúrið er gagnvirk upplifun sem byggir á grundvelli ytri frásagnarmeðferðar (e. Externalization narrative

therapy), þar sem börnum er boðið að tjá ótta sinn og áhyggjur listrænt í formi eigin sjóskrímsla, setja þau inn í

gagnvirkt fiskabúr og sjá þau verða lítil og máttlaus. Börn geta bætt sínu eigin skrímsli í tankinn og þegar þau nálgast

fiskabúrið mynda hreyfingar barnanna gárur í vatninu og skrímslin verða hrædd við þau.