Salka - Ástin og dauðinn

Salka - Ástin og dauðinn

Söguloftið | Landnámssetrið í Borgarnesi, Brákarbraut 13-15, 310 Borgarnes Directions

Sun 06.09.2026 14:00

Í tilefni af tuttugu ára afmæli Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi taka Þjóðleikhúsið og Landnámssetrið höndum saman og bjóða upp á einleik. Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur samið og mun flytja nýtt leikverk byggt á skáldsögu Halldórs Laxness Sölku Völku á Sögulofti setursins.

Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni mun Unnur Ösp þræða sig í gegnum sögu hennar, umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar. Í návígi við áhorfendur kallar Unnur fram stórbrotnar persónur sögunnar, með magnaðan texta Laxness að vopni. Í gegnum hættuleg en heillandi sambönd persónanna ætlar Unnur að leita að Sölku í sér og Sölku í okkur öllum.

Performers