Sálrænt öryggi: Verkfæri fyrir vinnustaðinn

Sálrænt öryggi: Verkfæri fyrir vinnustaðinn

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Mar 02 2027 08:30

Hvernig sköpum við starfsumhverfi þar sem fólk treystir sér til að segja frá hugmyndum, viðra áhyggjur, spyrja spurninga og viðurkenna mistök?

Sálrænt öryggi er mikilvæg forsenda öflugs samstarfs, lærdóms og nýsköpunar. Þegar það er til staðar treystir starfsfólk sér til að tjá hugmyndir, spyrja spurninga, viðurkenna mistök og leita aðstoðar án ótta við neikvæðar afleiðingar. En hvernig verður sálrænt öryggi til og hvað getum við gert til að efla það í daglegu starfi?

Á þessu hagnýta námskeiði eru kynntar rannsóknir um mikilvægi sálræns öryggis fyrir öflugt samstarf og árangur teyma og vinnustaða. Fjallað er um þá þætti sem stuðla að sálrænu öryggi og sérstaklega hlutverki stjórnenda og leiðtoga við að innleiða og viðhalda sálrænu öryggi innan teyma.

Örar breytingar á starfsumhverfi, meðal annars vegna tilkomu gervigreindar, geta skapað óvissu og álag. Við slíkar aðstæður verður sálrænt öryggi enn mikilvægara fyrir opin samskipti, lærdóm og aðlögunarhæfni teyma.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist aukna þekkingu á sálrænu öryggi, fái í hendur hagnýt verkfæri til að efla það á sínum vinnustað og stuðla þannig að betra samstarfi, vellíðan og árangri teyma.

Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og umræðum auk æfinga sem efla færni þátttakenda til að nýta þekkinguna markvisst í framhaldinu.

Námskeiðið hentar stjórnendum og öðrum sem vilja efla sálrænt öryggi, samstarf og vellíðan á vinnustað.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Einkenni, birtingarmyndir og mikilvægi sálræns öryggis.
  • Áhrif stöðugra breytinga í starfsumhverfinu á sálrænt öryggi.
  • Hlutverk leiðtoga og stjórnenda við að skapa og viðhalda sálrænu öryggi á vinnustað.
  • Hagnýtar leiðir, samskipti og aðferðir sem byggja upp og viðhalda sálrænu öryggi.
  • Hvernig við sköpum rými fyrir ólík sjónarmið.

Ávinningur þinn:

  • Aukin þekking á sálrænu öryggi og mikilvægi þess.
  • Hagnýt verkfæri sem stuðla að sálrænu öryggi á vinnustað.
  • Innsýn í áhrif gervigreindar á sálrænt öryggi og leiðir til að takast á við álag sem því tengist.
  • Aukin færni í samskiptum sem dýpka skilning á áskorunum og viðfangsefnum teyma.