Sambandið með jólatónleika 🎄

Sambandið með jólatónleika 🎄

Miðbær Selfoss, 800 Selfoss, Iceland, Eyravegur 12a, 800 Selfoss Directions

Fri Dec 18 2026 21:00

Sambandið spilaði fyrir fullu húsi í Vínstofunni í Friðheimum um jólin 2025 við frábærar undirtektir og mikla ánægju gesta.

Í ár verður hljómsveitin ekki aðeins á ferðinni í Biskupstungum heldur mætir hún einnig á Sviðið á Selfossi.

Þann 18. desember verða jólatónleikar Sambandsins á Sviðinu þar sem klassísk jólalög verða í bland við nýrri lög. Gamansögur, gleði og léttleiki einkennir sviðsframkomu Sambandsins og markmiðið er að gestir gangi út með bros á vör og jólaskapið í botni.