Samverustund

Samverustund

Árnessýsla Heritage Museum in Eyrarbakki, Eyrargata 50, 820 Eyrarbakki Directions

Sun Dec 13 2026 13:00

Kyrrð og samvera í Húsinu

Á þriðja sunnudegi í aðventu verður lögð áhersla á ró og samveru. Hin rómaða jólasýning safnsins verður opin sem og jólagluggi Árborgar í fjárhúsinu okkar. Einnig verður ratleikurinn „Rammvilltir Jólasveinar“ í boði fyrir gesti og gangandi.

Gestir geta sest niður við jólaföndur, notið piparkaka og fundið aðventufriðinn í sögulegu umhverfi Hússins á Eyrarbakka.

Byggðasafn Árnesinga býður alla velkomna til að njóta aðventunnar í hlýlegu og söguríku umhverfi þar sem jólahefðir fortíðar og nútíðar mætast.