Samverustundin okkar - fyrir leikskóla

Samverustundin okkar - fyrir leikskóla

Mon Mar 15 2027 10:00

Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú leiðir til þess að gera samverustundir í leikskóla eins skemmtilegar og lærdómsríkar og hægt er, svo öll börn geti notið sín.

Samverustund er haldin daglega í leikskólum og gegnir mikilvægu hlutverki í menningu íslensks leikskólastarfs. Í amstri dagsins er samveran notaleg stund þar sem börnin njóta sín í söng, spjalli og samveru og eftirvænting ríkir. Á námskeiðinu verður farið yfir þá þætti sem samverustund byggir á, tilgang, skipulag og fjölbreytni í innihaldi með tilliti til aldurs og þroska barnanna. Fjallað verður um hvernig skipuleggja má vel ígrundaða samveru þar sem hvert barn fær tækifæri til að taka þátt, leika og læra.

Námskeiðið er ætlað leikskólakennurum og starfsfólki leikskóla.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Tilgang og kennslufræðilegt gildi samverustunda og hvers vegna samverustundir skipta máli varðandi þroskaþróun.
  • Uppbyggingu samverustunda og fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til barnahópsins.
  • Hvernig skipuleggja má stundir sem endurspegla áhuga, reynsluheim og taka við af barnahópnum.
  • Ákjósanlegan fjölda barna í hópi og hvernig hópastærð hefur áhrif á virkni, þátttöku og vellíðan barnanna.
  • Tímasetningu í dagskipulagi; samverustundin er tímasett þegar börnin eru einbeitt og áhugasöm.
  • Áhrifamátt kennarans og mikilvægi þess að skapa gleði, öryggi og eftirvæntingu í samveru og nýta eigin áhugasvið og hæfileika.
  • Gildi þess að hafa sjónræna umgjörð sem styður við skýran ramma og skilning barna á því sem fram fer.

Ávinningur þinn:

  • Aukið öryggi og skýrari sýn á tilgang og hlutverk samverustunda í samræmi við kennslufræðilegt gildi þeirra og aðalnámskrá leikskóla.
  • Betri innsýn og nýjar hugmyndir að leikjum, verkefnum og nálgun sem gera samverustundir skemmtilegar, lifandi og lærdómsríkar.
  • Aukin færni í skipulagi samverustunda með áherslu á ramma, fjölbreytileika og aðlögun að aldri og þroska barnanna.

Aðrar upplýsingar

Námskeiðið er í fjarkennslu, kennari fer fram á að þátttakendur séu alltaf í mynd á meðan á námskeiðinu stendur og hafi glærur námskeiðsins við hendina. Kennari hvetur þátttakendur til að taka virkan þátt í námskeiðinu, spyrja spurninga og koma með innlegg þegar þeir óska þess líkt og um staðnámskeið sé að ræða.