Seigla og sjálfstraust barna

Seigla og sjálfstraust barna

Hlégarður, 2 Háholt, 270 Mosfellsbær Directions

Thu Jan 28 2027 19:30

Fimmtudaginn 28. janúar kl. 19:30-21:00 verður Ársæll Már Arnarsson, prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, með fræðslu fyrir foreldra nemenda 5. bekkja í grunnskólum Mosfellsbæjar. Aðrir foreldrar sem áhuga hafa eru einnig velkomnir.

Viltu styðja barnið þitt til að takast á við áskoranir af öryggi og seiglu? Í þessum hagnýta fyrirlestri verður fjallað um hvernig hægt er að efla sjálfstraust og þrautseigju barna sem hvorutveggja eru lykilþættir góðrar andlegrar líðunar, sjálfsmyndar, námsárangurs og lífsánægju til framtíðar.

Á þessum fyrirlestri verður meðal annars skoðað:

- Hvað þrautseigja og sjálfstraust eru og hvernig þau þróast

- Hvernig foreldrar geta hjálpað börnum að takast á við mistök og mótlæti

- Aðferðir til að hvetja til seiglu, forvitni og sjálfstæðis í daglegu lífi

- Hvers vegna hrós getur bæði hjálpað og skaðað – og hvernig á að nota það rétt

- Hagnýtar leiðir til að rækta heilbrigðan sjálfsaga og innri hvatningu

-----

Foreldraskóli Mosfellsbæjar er verkefni sem hleypt er af stokkunum haustið 2026 og er hluti af Samskiptasáttmála Mosfellsbæjar. Foreldraskólinn felur í sér árlega fræðslu fyrir foreldra sem miðast við aldur barna þeirra. Mælst er til þess að allir foreldrar viðkomandi aldurshóps sæki þá fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni.