SharePoint - frá grunni til ofurnotanda
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Mar 02 2027 13:00
Lærðu að nýta SharePoint betur í daglegu starfi og koma upp skipulagi sem einfaldar samvinnu og upplýsingamiðlun.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að byggja upp og annast SharePoint-svæði frá grunni. Fjallað er um tengsl SharePoint við Teams, OneDrive og aðra hluta Microsoft 365, skipulag gagna með skjalasöfnum, listum, lýsigögnum, yfirlitum og efnisgerðum, auk útgáfustýringar, aðgangsheimilda og deilingar.
Kennslan sameinar stutta fyrirlestra, sýnikennslu og verklegar æfingar sem eiga að tryggja að þátttakendur geti strax nýtt þekkingu sína í starfi. Ekki er gert ráð fyrir forritun og námskeiðið nær ekki til miðlægrar kerfisstjórnunar hvorki í SharePoint umhverfinu né í Microsoft 365 (tenant-stjórnunar).
Námskeiðið er fyrir starfsfólk fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem nota eða eru að taka upp Microsoft 365 og vilja ná góðum tökum á SharePoint – t.d. skrifstofufólk, verkefnastjóra, gæðastjóra, skjalastjóra og þá sem eiga að verða tengiliðir eða „ofurnotendur“ á sínum vinnustað. Engar forkröfur eru gerðar um þekkingu á SharePoint, en almenn tölvufærni og grunnþekking á Office-forritum er æskileg.
Vinsamlega athugið að þátttakendur þurfa að mæta með eigin fartölvu og hafa aðgang að Microsoft 365 (t.d. vinnuaðgang) og hafa SharePoint-réttindi til að stofna svæði. Nánari leiðbeiningar eru sendar viku fyrir fyrsta tíma.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Hvað er SharePoint? Hvernig vinnur það með Teams, OneDrive og Microsoft 365?
- Munurinn á teymissvæði og samskiptasvæði (team sites og communication sites) og hvenær hvort hentar.
- Skjalasöfn, vistun, samvinna, útgáfusaga, deiling gagna.
- Upplýsingaskipulag - Lýsigögn (metadata), dálkar, sýnir (view), síur og flokkun í stað flókinna möppukerfa.
- Microsoft Lists, efnisgerðir (content types) og sniðmát.
- Leit í SharePoint.
- Aðgangsheimildir, heimildahópar, erfðir og örugg deiling innan og utan fyrirtækis.
- Ruslakarfan, endurheimt gagna og bestu venjur í umsjón SharePoint-svæða.
Ávinningur þinn:
- Þekking á SharePoint og tengsl þess við Teams og OneDrive.
- Kunnátta í að vinna með skjalasöfn, lýsigögn, yfirlit, lista, síður og aðgang.
- Færni í að greina og leysa algeng notendavandamál.
- Hæfni til að leiðbeina samstarfsfólki.
- Geta til leysa mál og vita hvenær er best að vísa máli áfram á tæknideild.
Aðrar upplýsingar
Vinsamlega athugið að þátttakendur þurfa að mæta með eigin fartölvu og hafa aðgang að Microsoft 365 (t.d. vinnuaðgang) og hafa SharePoint-réttindi til að stofna svæði. Nánari leiðbeiningar eru sendar viku fyrir fyrsta tíma.