SharePoint Pages - frá grunni að faglegri framsetningu
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Nov 16 2026 13:00
Góðar SharePoint síður eru lykill að skýrari upplýsingamiðlun og betra aðgengi að efni. Lærðu að skapa faglegar og notendavænar síður sem nýtast strax í starfi.
Þetta námskeið fjallar sérstaklega um SharePoint Pages, þ.e. hvernig búa má til og setja upp upplýsingasíður og innri vefi í SharePoint. Athygli er vakin á því að þetta námskeið er ekki grunnnámskeið í SharePoint umhverfinu.
Vel uppsettar SharePoint síður auðvelda miðlun upplýsinga, bæta aðgengi starfsfólks að efni og stuðla að samræmdri framsetningu upplýsinga innan vinnustaða.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að sýna hvernig byggja má upp skýrar, faglegar og notendavænar vefsíður með þeim verkfærum sem SharePoint Pages býður upp á. SharePoint Pages hentar til dæmis sérstaklega vel fyrir innri vefi og gæðahandbækur svo eitthvað sé nefnt.
Þátttakendur búa til síðu og spreyta sig á verkefnum til að auka færni sína. Verklegar æfingar tryggja að þátttakendur geta strax nýtt þekkinguna í starfi.
Grunnnámskeið fyrir þau sem vilja læra að nota SharePoint Pages til að miðla upplýsingum á sínum vinnustað.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Uppbyggingu síðna.
- Framsetningu upplýsinga.
- Stjórnborð kerfisins.
- Vistun fylgigagna og ítarefnis.
- Útgáfusögu.
- Leiðarkerfi.
- Leitarmöguleika.
- Aðgangsstýringar.
Ávinningur þinn:
- Góð þekking á möguleikum SharePoint pages.
- Færni til að byggja upp skýrar og notendavænar síður í SharePoint pages.
- Færni til að nýta ólíka vefparta markvisst til miðlunar upplýsinga á SharePoint síðum.
- Ofurnotandi í SharePoint pages og þekking til að kenna öðrum eða leiðbeina á sínum vinnustað.
- Sjálfstraust gagnvart síbreytilegu umhverfi SharePoint pages.
Aðrar upplýsingar
Þátttakendur þurfa að:
- Hafa með sér fartölvu.
- Vera með SharePoint pages uppsett í tölvunni sinni og með ritréttindi þar inni eða
- Vera með fyrirtækja Teams uppsett á tölvunni og í hóp þar inni.