Shjówmen – Hringleikur  á Egilsstöðum

Shjówmen – Hringleikur á Egilsstöðum

Sláturhúsið, Kaupvangur 9, 700 Egilsstaðir Directions

Sun Sep 27 2026 13:00

Shjówmenn - sirkussýning um sjómennskuna - opinn viðburður í Sláturhúsinu og á Reyðarfirði

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.

Höfundar: Bjarni Árnason og Nick Candy

Flytjendur: Eyrún Ævarsdóttir/Nick Candy og Bjarni Árnason

Framleiðsla: Eyrún Ævarsdóttir fyrir hönd Hringleiks

Listræn ráðgjöf: Agnes Wild

Hljóðmynd : Brett Smith

Performers