Sígild jól

Sígild jól

Seltjarnarneskirkja, Kirkjubraut 2, 170 Seltjarnarnes Directions

Fri Dec 04 2026 20:00

Sígild jól 2026 

Listamenn: 

  • Sigríður Ósk Kristjánsóttir, mezzo-sópran.
  • Sigrún Hjáltýsdóttir, sópran.
  • Gissur Páll Gissurarson, tenór.
  • Tómas Guðni Eggertsson, orgel og píanó.
  • Hjörleifur Valsson, fiðla.
  • Júlía Mogensen, selló.

Tónleikarnir Sígild jól eru dásamleg upplifun á aðventunni. Tónleikarnir eru orðnir fastur liður í aðventu margra tónleikagesta.  Þar sem tónleikarnir fara fram í kirkju og gestir eru í návígi við tónlistarfólkið skapast vinaleg og hátíðleg stemning.

 

Nokkrir af okkar fremstu sígildu söngvurum færa okkur fagra tóna við meðleik framúrskarandi hljóðfæraleikara. Tónlistin er aðallega sígild og fer aðeins út í jazz og dægurlög.

 

Á dagskránni er góð blanda af fallegum jólasöngvum og -sálmum íslenskum og erlendum. Má þar nefna perlur eins og Ave Maríur, dúettinn Con te partiro, Jólin alls staðar, Yfir fannhvíta jörð, Have yourself a merry little Christmas, Ó helga nótt og Heims um ból í gullfallegum dúett.

 

Í ár er 10 ára afmæli Sígildra jóla. Af því tilefni semur tónskáldið Bára Grímsdóttir jólalag sérstaklega fyrir tónleikana. 

 

Listrænn stjórnandi tónleikanna er Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.

 

Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Seltjarnarneskirkju, sem opnar kl. 19:30 og það er frjálst sætaval.