Skapandi sumarstörf x VAKA þjóðlistahátíð: Púkablístran
Molinn Ungmennahús, Hábraut 2, 200 Kópavogur Directions
Mon Sep 14 2026 18:00
Púkablístran er tónlistar- og útvarpsleikritsverk eftir Stefán Nordal, listamann í Skapandi sumarstörfum Kópavogs, unnið í samstarfi við Vöku þjóðlistarhátíð.
Verkið endursegir sögur af Sæmundi Fróða og Kölska í nýjum búningi þar sem frásögn, leikur, tónlist og hljóðheimur fléttast saman í skemmtileg ævintýri fyrir alla aldurshópa. Innblásið af íslenskum þjóðsögum og klassískum barnaplötum gefur verkefnið þjóðsagnaarfinum nýtt líf fyrir nýja kynslóð.
📅 Kynning og atriði á uppskerudögum Skapandi sumarstarfa: 21.-24. júlí
📅 Útgáfa á Spotify í lok ágúst
📅 Frumsýning í Molanum sem hluti af Vöku þjóðlistarhátíð: 10. september kl 20:00
Verkið er hluti af Skapandi sumarstörfum Kópavogs 2026 og unnið í samstarfi við Vöku þjóðlistarhátíð.